top of page

Skólastarf hefst að nýju 6.apríl nk.

Skólastarf eftir páskafrí

Kæru foreldrar og forráðamenn nemenda í Kerhólsskóla.


Kerhólsskóli byrjar samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 6. apríl nk.

Samkvæmt menntamálaráherra verður skólastarf óskert og óbreytt eftir páskafrí, þar sem við erum það fámenn í Kerhólsskóla. Hlökkum til að sjá alla hressa og káta eftir gott frí.

Hér eru aðalatriðin sem komu fram um leik- og grunnskóla:

Leikskólar

  • Engin fjölda- eða nálægðartakmörkun gildir um börn á leikskólaaldri.

  • Hámarksfjöldi fullorðinna er 20 manns í rými, en starfsmenn mega fara milli rýma.

  • Starfsfólk skal virða 2 metra fjarlægðarreglu sín á milli en nota grímu ella.

  • Viðburðir eru heimilir í skólastarfinu með þátttöku nemenda og starfsfólks en engum utanaðkomandi.

  • Foreldrar og aðstandendur skulu ekki koma inn í skólabyggingar nema brýna nauðsyn beri til og skulu þá nota andlitsgrímu.

Grunnskólar

  • Nemendur eru undanþegnir nálægðartakmörkun og grímuskyldu.

  • Hámarksfjöldi starfsmanna er 20 manns í rými og þeir mega fara milli rýma.

  • Starfsfólk skal virða 2 metra fjarlægðarreglu sín á milli og gagnvart nemendum en nota grímu ella.

  • Viðburðir eru heimilir í skólastarfinu með þátttöku nemenda og starfsfólks en engum utanaðkomandi.

  • Hámarksfjöldi nemenda í rými er 50 og blöndun milli hópa innan sama skóla er heimil.

Frá menntamálaráðherra

Nýlegar fréttir
Mánuðir 
bottom of page