Umhverfisdagur í frábæru veðri
Á dögunum var umhverfisdagur í Kerhólsskóla. Við byrjuðum á að setja kurl á göngustíga, sópa og tína rusl á skólalóðinni, gera pödduhótel, taka upp plöntur og planta niður í Yndisgarðinn. Eftir kaffitímann í grunnskóladeildinni voru kennararnir með skapandi stöðvar í boði þar sem nemendur fengu að velja sér hvert og hvenær þau fóru á hvaða stöð, svokallað flæði. Eftirtaldar stöðvarnar voru í boði: Sápukúlur Hálsmen Útileikir Tálgun Útilestur Jóga Mála Hugleiðsla Útieldun Leik