Grænfánaafhending í fimmta sinn
Á dögunum fékk Kerhólsskóli afhentan Grænfánann í fimmta sinn. Fulltrúi frá Landvernd kom til að afhenda fánann, en grænfáninn er veittur skólum sem vinna markvisst að menntun til sjálfbærni. Nemendur í leik- og grunnskóladeild Kerhólsskóla skrifuðu undir umhverfissáttmála skólans sem að þessu sinni var tré sem umvefur jörðina, nemendur skreyttu sitt laufblað og hengdu á tréð. Umhverfissáttmálinn er síðasti liðurinn af skrefunum 7 sem stigin eru í átt að umsókn um Grænfána. F