Öryggi í forgrunni þegar hjólin koma fram

Sigurbjörg H Sigurjónsdóttir • 28. apríl 2026

Hjálmaskylda

Það gleður okkur mjög að sjá nemendur draga fram reiðhjólin sín nú þegar veturinn er að sleppa takinu og sumarið nálgast. Með aukinni hjólreiðanotkun viljum við leggja sérstaka áherslu á öryggi.


Í gær fengu nemendur í 1. og 2.  bekk fræðslu frá skólahjúkrunarfræðingi um mikilvægi þess að nota hjálm við hjólreiðar. Samkvæmt íslenskum umferðarlögum er börnum yngri en 16 ára skylt að nota viðurkenndan reiðhjólahjálm við hjólreiðar. Hjálmanotkun er ein einfaldasta og árangursríkasta leiðin til að draga úr alvarlegum höfuðáverkum.


Mikilvægt fyrir foreldra að hafa í huga:

  • Hjálmur á að vera CE merktur og líftími hans er um 3 ár.
  • Hjálmur þarf að verja enni, hnakka, gagnaugu og koll. Eyrað á að vera í miðju V-laga banda og aðeins 1–2 fingur eiga að komast milli höku og bands.
  • Hjálmur þarf að vera í réttri stærð og sitja þétt svo hann veiti örugga vörn.
  • Ef hjálmur fær högg er hann ónýtur og þarf að skipta honum út.
  • Mikilvægt er að foreldrar séu góðar fyrirmyndir – fullorðnir ættu einnig að nota hjálm.
  • Munið að ung börn, sérstaklega um sex ára aldur, eru forvitin og eiga erfitt með að meta hraða og fjarlægð. Þau geta því auðveldlega misst athyglina í umferðinni.


Á heimasíðu Landsbjargar má finna góða fræðslu um hjólreiðar.

Með sameiginlegu átaki getum við stuðlað að auknu öryggi barna okkar á hjólum.


Eftir Sigurbjörg H Sigurjónsdóttir 2. júní 2026
Vorferð grunnskóladeildar 2026
Eftir Sigurbjörg H Sigurjónsdóttir 21. maí 2026
Grunnskóla- og leikskóladagatal fyrir skólaárið 2026-2027 er komið. Hægt er að skoða þau hér á heimasíðunni. Skólasetning verður föstudaginn 21. ágúst n.k.
Eftir Sigurbjörg H Sigurjónsdóttir 15. maí 2026
Útivist - Umhverfisvernd - Hreyfing
Eftir Sigurbjörg H Sigurjónsdóttir 30. apríl 2026
Stóra upplsetrarkeppnin
Eftir Sigurbjörg H Sigurjónsdóttir 22. apríl 2026
Grænir fingur í 1. og 2. bekk
Eftir Sigurbjörg H Sigurjónsdóttir 16. apríl 2026
Laus staða umsjónakennara
Eftir Sigurbjörg H Sigurjónsdóttir 15. apríl 2026
Lúlli bekkjarstjarna
Eftir Guðrún Ása Kristleifsdóttir 25. mars 2026
Appelsínugul viðvörun
Eftir Guðrún Ása Kristleifsdóttir 29. janúar 2026
7.bekkur í grenndarnámi á Sólheimum
Eftir Guðrún Ása Kristleifsdóttir 24. desember 2025
Gleðileg Jól
Sýna meira