Gjaldskrá dagvistunargjalda leikskóladeildar Kerhólsskóla. Lágmarksvistun á dag eru 4 tímar.


Hver hafin klukkustund í vistun telur sem ein klukkustund. Sem dæmi, ef vistun er 4 tímar og 15 mínútur þá borgar viðkomandi gjaldið fyrir 5 tíma. Ef vistun er 8 tímar og 15 mínútur þá borgar viðkomandi gjaldið fyrir 9 tíma samtals 26.931 kr.


Athugið að leikskólinn lokar kl. 14:00 á föstudögum.


Gjald fyrir skráningardaga er 2.500 krónur á hvern skráningardag.

Ef sótt er of seint eða komið með barn of snemma þá kostar hverjar byrjaðar 15 mínútur 1.000 krónur.


Systkinaafsláttur er 25% fyrir annað barn, 50% fyrir þriðja barn og 100% afsláttur fyrir fjórða barn. 20% afsláttur er í boði fyrir einstæða foreldra. 20% afsláttur er í boði ef annað foreldri er í fullu námi en 40% ef báðir foreldrar eru í fullu námi.

Afslátturinn sem talinn er upp hér að ofan er veittur af mánaðargjaldinu.


Mötuneytið er gjaldfrjálst fyrir börn í Kerhólsskóla.