Góður árangur Kerhólsskóla í Stóru upplestrarkeppninni

Sigurbjörg H Sigurjónsdóttir • 30. apríl 2026

Stóra upplsetrarkeppnin

Tveir fulltrúar úr 7. bekk í Kerhólsskóla tóku þátt í Stóru upplestrarkeppninni á mánudaginn var við hátíðlega athöfn sem Skólaþjónusta Árnesþings stóð fyrir. Þar komu einnig saman nemendur frá Bláskógaskóla á Laugarvatni, Flóaskóla, Flúðaskóla, Reykholtsskóla og Þjórsárskóla.


Árangur nemenda Kerhólsskóla var einstaklega góður, en bæði komust þau á verðlaunapall. 

Þorbjörg Ásta Hallbjarnardóttir hafnaði í þriðja sæti og Hilmir Dreki Guðmundsson hreppti fyrsta sætið og stóð uppi sem sigurvegari keppninnar.


Í dómnefnd sátu Katrín Rut Sigurgeirsdóttir íslenskukennari við Fjölbrautaskóla Suðurlands, Guðbjörg Arnardóttir sóknarprestur í Árborg og Anna Stefanía Vignisdóttir talmeinafræðingur.


Þess má líka geta að Harpa Jakobsdóttir, nemandi í 8. bekk í Kerhólsskóla og sigurvegari keppninnar í fyrra, flutti texta og ljóð fyrir gesti við athöfnina.


Við erum mjög hreykin af öllum flottu krökkunum okkar hér í Kerhólsskóla og framtíðin er sannarlega björt.

Eftir Sigurbjörg H Sigurjónsdóttir 2. júní 2026
Vorferð grunnskóladeildar 2026
Eftir Sigurbjörg H Sigurjónsdóttir 21. maí 2026
Grunnskóla- og leikskóladagatal fyrir skólaárið 2026-2027 er komið. Hægt er að skoða þau hér á heimasíðunni. Skólasetning verður föstudaginn 21. ágúst n.k.
Eftir Sigurbjörg H Sigurjónsdóttir 15. maí 2026
Útivist - Umhverfisvernd - Hreyfing
Eftir Sigurbjörg H Sigurjónsdóttir 28. apríl 2026
Hjálmaskylda
Eftir Sigurbjörg H Sigurjónsdóttir 22. apríl 2026
Grænir fingur í 1. og 2. bekk
Eftir Sigurbjörg H Sigurjónsdóttir 16. apríl 2026
Laus staða umsjónakennara
Eftir Sigurbjörg H Sigurjónsdóttir 15. apríl 2026
Lúlli bekkjarstjarna
Eftir Guðrún Ása Kristleifsdóttir 25. mars 2026
Appelsínugul viðvörun
Eftir Guðrún Ása Kristleifsdóttir 29. janúar 2026
7.bekkur í grenndarnámi á Sólheimum
Eftir Guðrún Ása Kristleifsdóttir 24. desember 2025
Gleðileg Jól
Sýna meira