Umhverfis- og hjóladagurinn

Sigurbjörg H Sigurjónsdóttir • 15. maí 2026

Útivist - Umhverfisvernd - Hreyfing

Umhverfis- og hjóladagurinn var haldinn í Kerhólsskóla miðvikudaginn 13. maí síðast liðinn.


Mikil gleði og dugnaður einkenndi daginn þar sem nemendur og starfsfólk sameinuðust í útivist, umhverfisvernd og hreyfingu.


Fyrri hluti dagsins var tileinkaður umhverfisvinnu. Nemendur á yngsta stigi tóku til hendinni við að tína rusl og sópa nærumhverfi skólans, á meðan nemendur á mið- og unglingastigi sinntu kurlun og grisjun á skólalóðinni og í nágrenni hennar. Þar lögðu allir sitt af mörkum til að fegra og bæta umhverfið. Eftir frímínútur voru hjólin dregin fram og tók þá við skemmtileg hreyfing utandyra. Nemendur á mið- og unglingastigi fóru ýmist í hjólatúr eða göngutúr um nærsvæðið. Yngstu nemendurnir hjóluðu við skólann og um nýju göturnar móts við skólann við mikinn fögnuð.

Eftir hádegi fóru allir saman í sund þar sem nemendur nutu þess að slaka á og leika sér eftir fjölbreytta og hressandi útiveru.


Dagurinn tókst afar vel og sýndi mikilvægi samveru, hreyfingar og umhyggju fyrir umhverfinu.


Meðfylgjandi er myndasería frá deginum.

Eftir Sigurbjörg H Sigurjónsdóttir 30. apríl 2026
Stóra upplsetrarkeppnin
Eftir Sigurbjörg H Sigurjónsdóttir 28. apríl 2026
Hjálmaskylda
Eftir Sigurbjörg H Sigurjónsdóttir 22. apríl 2026
Grænir fingur í 1. og 2. bekk
Eftir Sigurbjörg H Sigurjónsdóttir 16. apríl 2026
Laus staða umsjónakennara
Eftir Sigurbjörg H Sigurjónsdóttir 15. apríl 2026
Lúlli bekkjarstjarna
Eftir Guðrún Ása Kristleifsdóttir 25. mars 2026
Appelsínugul viðvörun
Eftir Guðrún Ása Kristleifsdóttir 29. janúar 2026
7.bekkur í grenndarnámi á Sólheimum
Eftir Guðrún Ása Kristleifsdóttir 24. desember 2025
Gleðileg Jól
Eftir Guðrún Ása Kristleifsdóttir 18. desember 2025
Föndur, jólasund og rithöfundur í heimsókn
Eftir Guðrún Ása Kristleifsdóttir 16. desember 2025
Nemendur kusu um nýtt þema
Sýna meira