Plöntum sáð fyrir Bambahúsið

Sigurbjörg H Sigurjónsdóttir • 22. apríl 2026

Grænir fingur í 1. og 2. bekk

Í haust fékk Kerhólsskóli styrk frá Krónunni til kaupa á svokölluðu Bambahúsi, gróðurhúsi sem ætlað er að efla kennslu og áhuga nemenda á ræktun og náttúruvísindum. Í vetur barst skólanum síðan húsið sjálft að gjöf og nú er loksins hægt að hefja notkun þess af fullum krafti.


Nemendur í 1. og 2. bekk hafa þegar tekið virkan þátt í verkefninu. Þeir hafa sáð fræjum og fylgst grannt með vexti plantnanna sem hafa dafnað vel dag frá degi. Verkefnið hefur vakið mikinn áhuga meðal barnanna sem fá þar tækifæri til að kynnast ferli ræktunar af eigin raun. Nýverið var ákveðið að taka plönturnar út til að herða þær fyrir íslenskar aðstæður. Þær fengu að njóta sólskinsins, fengu smá lögg og virtust almennt voða ánægðar með útiveruna. Þó komu fram smávægileg merki um aðlögunarörðugleika hjá agúrkuplöntunum sem voru nokkuð niðurlútar daginn eftir.


Að sögn kennara hefur verkefnið reynst afar dýrmætt. Það gefur nemendum innsýn í líffræði plantna, kennir þeim þolinmæði og eykur ábyrgðarkennd auk þess sem það er skemmtilegt að fylgjast með „litlu grænu vinunum“ vaxa og blómstra.


Með tilkomu Bambahússins skapast ný tækifæri til verklegrar kennslu við Kerhólsskóla þar sem náttúran er höfð í forgrunni.

Eftir Sigurbjörg H Sigurjónsdóttir 2. júní 2026
Vorferð grunnskóladeildar 2026
Eftir Sigurbjörg H Sigurjónsdóttir 21. maí 2026
Grunnskóla- og leikskóladagatal fyrir skólaárið 2026-2027 er komið. Hægt er að skoða þau hér á heimasíðunni. Skólasetning verður föstudaginn 21. ágúst n.k.
Eftir Sigurbjörg H Sigurjónsdóttir 15. maí 2026
Útivist - Umhverfisvernd - Hreyfing
Eftir Sigurbjörg H Sigurjónsdóttir 30. apríl 2026
Stóra upplsetrarkeppnin
Eftir Sigurbjörg H Sigurjónsdóttir 28. apríl 2026
Hjálmaskylda
Eftir Sigurbjörg H Sigurjónsdóttir 16. apríl 2026
Laus staða umsjónakennara
Eftir Sigurbjörg H Sigurjónsdóttir 15. apríl 2026
Lúlli bekkjarstjarna
Eftir Guðrún Ása Kristleifsdóttir 25. mars 2026
Appelsínugul viðvörun
Eftir Guðrún Ása Kristleifsdóttir 29. janúar 2026
7.bekkur í grenndarnámi á Sólheimum
Eftir Guðrún Ása Kristleifsdóttir 24. desember 2025
Gleðileg Jól
Sýna meira