Sigurbjörg H Sigurjónsdóttir • 19. júní 2026

Nú hafa allir nemendur Kerhólsskóla kvatt skólaárið 2025–2026 og tekið á móti sumarfríinu eftir viðburðaríka og skemmtilega lokadaga.


Síðustu kennsludagarnir voru nýttir til sameiginlegs vordags leik- og grunnskóladeildar þar sem nemendur og starfsfólk komu saman í útileiki og fjölbreyttar stöðvar fyrir hádegi. Foreldrafélagið lagði sitt af mörkum og grillaði pylsur fyrir alla gesti sem nutu samverunnar og sköpuðu skemmtilega stemningu í góðu veðri.


Skólaárinu lauk með hátíðlegum skólaslitum þann 5. júní 2026 þar sem jafnframt fór fram útskrift skólahóps leikskólans og útskrift 10. bekkjar grunnskólans. Alls útskrifuðust sex nemendur úr leikskólanum og sex nemendur úr 10. bekk.

Við bjóðum verðandi 1. bekkinga hjartanlega velkomna í grunnskólann í haust og óskum þeim velfarnaðar á nýjum kafla í skólagöngu sinni. Jafnframt sendum við útskriftarnemendum 10. bekkjar innilegar hamingjuóskir með áfangann og óskum þeim alls hins besta á komandi tímum – framtíðin er sannarlega björt.


Við hjá Kerhólsskóla þökkum nemendum, starfsfólki, foreldrum og öllum sem komu að skólastarfinu kærlega fyrir ánægjulegt og viðburðaríkt skólaár 2025–2026. Skólinn var fullur af lífi, gleði og lærdómi og við hlökkum til að taka á móti nemendum á ný.


Skólasetning skólaársins 2026–2027 verður föstudaginn 21. ágúst kl. 10:00 í félagsheimilinu á Borg.


Við óskum öllum gleðilegs og sólríks sumars og hlökkum til að sjá ykkur aftur í haust.


Hér neðar má sjá myndir frá vordeginum og skólaslitum.