Sigurbjörg H Sigurjónsdóttir • 2. júní 2026

Vorferð grunnskóladeildar 2026

Fimmtudaginn 28. maí lagði grunnskóladeild Kerhólsskóla af stað í hina árlegu vorferð. Dagurinn bauð upp á allt það sem góð skólaferð þarf að innihalda: dýr, göngu, sund, heitan læk og auðvitað pizzu.


Nemendur í 1.–4. bekk byrjuðu daginn á heimsókn á sveitabæ þar sem ábúendur á Klausturhólum buðu okkur að koma í heimsókn að sjá nýfædd lömb og kiðling.

Kiðlingurinn vakti mikla athygli  og fékk líklega fleiri knús en nokkur kiðlingur hefur fengið á þessu ári. Hestarnir stóðu sig einnig með prýði og tóku vel á móti gestunum. Þaðan var haldið í skóginn á Snæfoksstöðum þar sem nestið var tekið fram og leikgleðin fékk að njóta sín. 

Að lokum var stefnan sett á Hveragerði þar sem hópurinn skellti sér í sund í Laugarskarði áður en pizzurnar á Hofland fengu að sjá um að fylla orkuforðann á ný.


Nemendur í 5.–9. bekk fengu aðeins meira krefjandi verkefni. 

Eftir að hafa smurt nesti af mikilli fagmennsku var hópnum skutlað upp á Hellisheiði þar sem ganga hófst við Ölkelduháls. Leiðin lá niður í Reykjadal og þó að sumum hafi fundist brekkurnar lengjast með hverju skrefi komust allir heilir á húfi á leiðarenda hvort sem gengið var í gönguskóm, strigaskóm eða inniskóm. 

Skyldustopp var að sjálfsögðu í heita læknum þar sem margir nýttu tækifærið til að slaka á og láta þreytuna renna af sér með straumnum. 

Eftir gönguna beið þeirra svo verðskulduð pizza á Hofland.


Dagurinn heppnaðist einstaklega vel og sannaði að samsetningin „útivera, góðir vinir og pizza“ er nánast ósigrandi. 

Bæði nemendur og starfsfólk voru sammála um að vorferðin hefði verið skemmtileg, fjölbreytt og eftirminnileg. Slíkar ferðir eru dýrmætt tækifæri til að njóta útiveru, efla samveru og skapa góðar minningar saman.


Hér neðar má svo sjá myndir frá ferðinni.