Veiga Dögg Magnúsdóttir • 28. ágúst 2026
Skólastarfið fer vel af stað í Kerhólsskóla

Nýtt skólaár er hafið í Kerhólsskóla og hefur starfið farið vel af stað. Það var ánægjulegt að taka á móti nemendum á ný eftir sumarfrí og finna fyrir lífi og gleði á göngum skólans.
Nemendur hafa komið ánægðir til starfa og tekist á við fyrstu verkefni vetrarins af áhuga og jákvæðni. Fyrstu dagarnir hafa meðal annars farið í að kynnast, rifja upp venjur skólans og leggja grunn að góðu og farsælu skólaári.
Við hlökkum til vetrarins og alls þess fjölbreytta náms og starfs sem fram undan er. Markmiðið er sem fyrr að skapa öruggt, jákvætt og hvetjandi skólaumhverfi þar sem öllum nemendum líður vel og þeir fá tækifæri til að vaxa og dafna.
