Göngum í skólann og Ólympíuhlaup ÍSÍ

Verkefnið Göngum í skólann 2026 hófst formlega í gær 9. september og stendur það til 7. október en þá er alþjóðlegi göngudagurinn í skólann (International Walk to School Day).
Göngum í skólann hefur verið fastur liður í skólastarfi víða um land um árabil. Starfsfólk fræðslu- og almenningsíþróttasviðs ÍSÍ ferðast um landið á hverju hausti og setur verkefnið formlega af stað. Markmiðið er að hvetja nemendur og foreldra til að ganga, hjóla eða nota annan virkan ferðamáta til og frá skóla og auka þannig daglega hreyfingu og bæta heilsu.
Verkefninu er einnig ætlað að:
- efla færni barna til að ferðast á öruggan hátt til skóla,
- kenna reglur um umferðaröryggi,
- draga úr umferð við skóla,
- bæta loftgæði og öryggi í nágrenni skóla,
- auka vitund um umhverfismál og gönguvænt nærumhverfi.
Göngum í skólann og Ólympíuhlaup ÍSÍ eru hluti af Íþróttaviku Evrópu, BeActive, sem hvetur fólk á öllum aldri til aukinnar hreyfingar og þátttöku í íþróttum.
Við í Kerhólsskóla munum taka þátt í verkefninu með því að allir árgangar skólans munu fara út í göngutúr daglega í eina viku eða frá 14.-18. september næstkomandi.
Ólympíuhlaup ÍSÍ hefur verið fastur liður í skólastarfi grunnskóla víða um land frá árinu 1984. Starfsfólk fræðslu- og almenningsíþróttasviðs ÍSÍ hefur um árabil ferðast um landið og sett hlaupið formlega af stað á hverju hausti. Hlaupið er í dag hluti af Íþróttaviku Evrópu, BeActive, og hefur það að markmiði að hvetja nemendur til reglulegrar hreyfingar og stuðla að betri heilsu, vellíðan og jákvæðum lífsvenjum.
Kerhólsskóli mun taka þátt í Ólympíuhlaupinu næsta miðvikudag í miðlotunni og endað verðu svo á sundlaugarparýi fyrir hádegismat.
