Veiga Dögg Magnúsdóttir • 21. september 2026

Sveitaþema í 3.-4. bekk

Sveitaþema í 3.–4. bekk

Undanfarið hefur 3.–4. bekkur verið að vinna með þemað sveitin, þar sem nemendur hafa meðal annars lært um kindur, svín, hænur og ýmislegt annað sem tengist dýrum og störfum í sveitinni.

Í dag fengum við svo tækifæri til að færa námið út fyrir skólastofuna og heimsækja tvo bæi. Fyrst lá leiðin í Ásgarð, þar sem mikil hænsnarækt er. Þar fengu krakkarnir að gefa landnámshænunum korn, skoða aðstæður þeirra og sjá hvar þær verpa eggjunum sínum.

Þaðan héldum við í Klausturhóla, þar sem við fengum að gefa hestunum brauð, klappa geitunum og prófa fjórhjólið, sem er ómissandi hjálpartæki við ýmis störf í sveitinni.

Þetta var frábær dagur þar sem nemendur fengu að tengja það sem við höfum verið að læra við raunverulegt sveitalíf og njóta þess að leika sér í þeirri ævintýraveröld sem sveitin getur verið.

Kærar þakkir fyrir okkur og frábærar móttökur.

Kveðja, Þóra umsj.kennari og krakkarnir í 3.og 4.bekk.