Grenndarnám á Sólheimum
Guðrún Ása Kristleifsdóttir • 29. janúar 2026
7.bekkur í grenndarnámi á Sólheimum
7.bekkur tekur nú þátt, líkt og undanfarin ár, í fjölbreyttu grenndarnámi á Sólheimum. Í hverjum útinámstíma yfir 5 vikna tímabil fara þau í heimsókn og taka þátt í starfinu. Þessi vinna er dýrmætur liður í skólastarfinu þar sem nemendur fá tækifæri til að kynnast nærumhverfi sínu, sögu og samfélagi á lifandi og skapandi hátt.
Nemendur byrjuðu á að fá fræðslu um sögu Sólheima og málefni fatlaðs fólks. Eftir það færðist fjörið yfir í hinar ýmsu vinnustofur þar sem sköpunargleðin ræður ríkjum og nemendur vinna fjölbreytt verkefni með íbúum og starfsfólki. Nemendur heimsækja trésmíðina, leirgerðina, listastofuna og leirgerðina.
Nemendur hafa fengið afar hlýjar mótttökur, þau hafa einnig verið til fyrirmyndar og hafa notið heimsóknanna mikið.









