Veiga Dögg Magnúsdóttir • 6. nóvember 2026
Dagur gegn einelti 6.nóvember 2026
Á degi gegn einelti fórum við út í Kerhólsskóla og mynduðum stóran hring. Bjalla gekk hringinn og hvert og eitt fékk að hringja henni. Við hlustuðum hvert á annað og biðum þar til allir höfðu fengið sinn tíma.
Með hringnum og bjöllunni vildum við minna á að allir skipta máli og eiga sinn stað í hópnum. Við getum sýnt það í verki á hverjum degi með því að bjóða öðrum með í leik, hlusta hvert á annað og láta vita ef við sjáum að komið er illa fram við einhvern.

