Skólanámskrá Kerhólsskóla er leiðarvísir um skólastarfið, ætluð nemendum, foreldrum, starfsfólki og öðrum þeim sem vilja kynna sér starfsemi skólans.
Skólanámskráin er í tveimur hlutum. Fyrri hlutinn inniheldur ýmsar upplýsingar um skólann og skólastarfið og seinni hlutinn inniheldur bekkja- og hópanámskrár þar sem fjallað er um hin ýmsu viðfangsefni, einstakar námsgreinar, markmið, leiðir í námi og kennslu, kennslugögn og námsmat. Í seinni hluta skólanámskrárinnar er birt viðmiðunastundaskrá Mennta- og menningarmálaráðuneytisins og gerð grein fyrir útfærslu Kerhólsskóla á viðmiðunarstundaskránni.
Fyrri hluti skólanámskrárinnar hefur að geyma fjóra kafla.
Í fyrsta kafla eru upplýsingar um skólann, s.s. um nemendur og starfsfólk og hverjir skipa ráð, nefndir og félög sem valið er í á vegum starfsmanna, foreldra og nemenda.
Í öðrum kafla er fjallað um skólastarfið, helstu áherslur skólans og námsfyrirkomulag.
Þriðji kafli fjallar um þá stoðþjónustu sem nemendum og forráðamönnum stendur til boða og í fjórða kafla eru ýmsar hagnýtar upplýsingar sem gott er að hafa við höndina. Aftast í þeim kafla er skóladagatal skólaársins.
Skólanámskrána er hægt að nálgast á heimasíðu skólans; http://www.kerholsskoli.is
Kaflinn; Almennar upplýsingar í fyrri hluta hennar er prentaður á pappír og send á öll heimili nemenda.
Skólanámskráin er stöðugt í þróun og allar ábendingar varðandi efni, efnistök eða annað sem lesendum dettur í hug eru vel þegnar. Vinsamlegast sendið slíkar ábendingar á netfang skólans; kerholsskoli@kerholsskoli.is .
Borg, 1. desember 2011,
Hilmar Björgvinsson skólastjóri



