Í þessum hluta skólanámskrár Kerhólsskóla eru árganganámskrár þar sem fjallað er um skipulag skólastarfsins, einstakar námsgreinar, markmið, leiðir í námi og kennslu, kennslugögn og námsmat. Skólanámskráin byggir á leik- og grunnskólalögum og Aðalnámskrá leik- og grunnskóla.
Þeir þættir sem snúa að leikskóladeild Kerhólsskóla eru ennþá í vinnslu. Þar sem skólanámskrá skólans er lifandi rit og stöðugt í endurskoðun verður nýtt efni sett inn um leið og það er tilbúið.
Í grunnskólalögum er gerð grein fyrir þeim lágmarkstíma sem nemendur eiga að vera í skóla og að nemendur í 8. – 10. bekk eigi rétt á ákveðnu vali í námi sínu. Í aðalnámskrá grunnskóla er gerð nánari grein fyrir þessum þáttum og þar er að finna viðmiðunarstundaskrá fyrir skóla. Hér verður gerð grein fyrir þessum þáttum og hvernig Kerhólsskóli útfærir þá.
Árganganámskrár eru aðgengilegar á heimasíðu skólans; http://www.kerholsskoli.is.
Ef foreldrar óska eftir að fá þær útprentaðar eða hluta af þeim eru þeir vinsamlegast beðnir um að hafa samband við skólann.
Borg, 1. desember 2011,
Hilmar Björgvinsson skólastjóri



