Viðburðadagatal

febrúar 2012
S Þ Mi Fi L
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829EC

Heimasíða Grímsnes- og Grafningshrepps
saft.is
17. nóvember 2011

Umhverfismennt

Börn og ungmenni eru alla jafna mjög forvitin og áhugasöm um hluti og fyrirbæri í umhverfinu. Það er því sjaldnast betra tækifæri en einmitt þá til þess að virkja áhuga þeirra, auka virðingu og ábyrgðartilfinningu til umhverfisins og samfélagsins sem þau lifa og hrærast í. Þetta tækifæri viljum við nýta sem best í Kerhólsskóla. Við erum vel í sveit sett því skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi, örstutt frá mörgum helstu náttúruperlum landsins, samfélagið er fjölbreytt og atvinnuhættir af ólíkum toga.

Útinám og vettvangsferðir, þar sem náttúran og umhverfið allt er notað sem námsvettvangur, auðgar og styrkir allt nám, auk þess að vera hollt fyrir líkama og sál. Þetta er líka vettvangur sem hentar mörgum betur en skólastofan og er því ákaflega mikilvægt að nýta sér hann til þess að styrkja þá sem þar eru á heimavelli. Auðvelt er í þessari kennslu að samþætta margar námsgreinar og er útinám því alls ekki einvörðungu bundið við náttúrufræði og umhverfismennt.

Í Kerhólsskóla höfum við þegar hafið ákveðna vinnu sem tengist umhverfisvernd og endurvinnslu. Við flokkum pappír, rafhlöður, lífrænt sorp, fernur og plast, í hart plast og mjúkt plast.

Það er von okkar, að með aukinni áherslu á náttúrufræði og umhverfismennt vaxi úr grasi ungt fólk sem nýtur þess að stunda útivist og upplifa náttúruna um leið og það getur fjallað um og tekið gagnrýna afstöðu til umhverfismála, sjálfbærrar þróunar, nýtingar náttúruauðlinda og umhverfisverndar.