Viðburðadagatal

maí 2012
S Þ Mi Fi L
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031EC

Heimasíða Grímsnes- og Grafningshrepps
saft.is
17. nóvember 2011

ART

Kerhólsskóli hefur tekið þátt í þróunarverkefni sem heitir ART. ART er skammstöfun fyrir Aggression Replacement Training. ART er vel afmörkuð og árangursrík aðferð til að fyrirbyggja og draga úr erfiðri hegðun hjá börnum og ungu fólki.

ART þjálfun byggir á þremur grunnflokkum:

• Félagsfærni

• Sjálfstjórnun

• Siðferðisvitund

Þjálfunin miðar að skilvirkri yfirfærslu á aðstæðum daglegs lífs og byggir m.a. á því að læra gegnum hlutverkaleiki.Skólinn er með þeim fyrstu á Suðurlandi sem tók þátt þessu verkefni. Það er Skólaskrifstofa Suðurlands sem hefur staðið fyrir ART námskeiðum fyrir grunnskólakennara.

Fjórir kennarar skólans hafa farið í gegnum sérstakt kennaranámskeið sem veitir þeim heimild til að vera með ART námskeið.