Fagnaðarfundur þegar allir mættu aftur í skólann
Á miðnætti aðfaranótt 4. maí tóku gildi nýjar reglur heilbrigðisráðherra um takmarkanir á samkomum. Fjöldamörk hafa verið hækkuð úr 20 í 50 manns, takmarkanir á fjölda nemenda í leik- og grunnskólum hafa verið felldar niður og sömuleiðis vegna íþróttaiðkunar og æskulýðsstarfs barna á leik- og grunnskólaaldri. Áfram gildir reglan um tveggja metra nálægðartakmörk hjá fullorðnum og gæta þarf að hreinlæti og sóttvörnum líkt og áður.
Fagnaðarfundir voru á meðal nemenda og starfsmanna Kerhólsskóla þegar allir hittust á ný í morgun eftir nokkra vikna hlé þvi hópnum var skipt upp vegna kórónuveirunnar. Eftir ljúffengan hádegismat var öllum boðið upp á ís til að fagna því að allir eru komnir á saman á ný.
Á meðfylgjandi mynd eru elstu nemendur skólans kátir og hressir eins og alltaf með sína ísa.