top of page

Skyndihjálparnámskeið fyrir starfsmenn

Starfsmenn skólans sóttu fjögurra klukkustunda skyndihjálparnámskeið í skólanum síðdegis Miðvikudaginn 29. janúar þar sem fjallað var um helstu þætti skyndihjálpar. Kennari á námskeiðinu var Anna Margrét Magnúsdóttir, skyndihjálparleiðbeindandi og hjúkrunarfræðingur. Um bóklegt og verklegt námskeið var að ræða. Eins og flestir ef ekki allir vita þá er skyndihjálp sú aðstoð sem veitt er veikum eða slösuðum einstaklingi á meðan beðið er eftir frekari aðstoð. Sá sem kann fáein einföld undirstöðuatriði í skyndihjálp getur bjargað mannslífi eða komið í veg fyrir að hinn veiki eða slasaði verði fyrir varanlegum skaða. Meðfylgjandi myndir frá námskeiðinu , sem var bæði fróðlegt og skemmtilegt tala sínu máli.

Fyrir hönd Kerhólsskóla

Veiga Dögg og Magnús Hlynur

Nýlegar fréttir
Mánuðir 
bottom of page