top of page

Danskur skólahópur í heimsókn í skólann.

Danskur skólahópur frá 127 manna eyju heimsóttu Kerhólsskóla

Nemendur og starfsmenn Kerhólsskóla fengu nýlega skemmtilega fjögurra daga heimsókn þegar danskir grunnskólanemendur frá eyjunni Anholt heimsótti skólann. Íbúar eyjunnar eru aðeins 127 en hún liggur á milli Danmerkur og Svíþjóðar. Anholt skole er minnsti skólinn í Danmörku en í skólanum eru 14 nemendur í grunnskóladeild og 3 börn í leikskóladeild. Hann er eins og Kerhólsskóli að því leiti að í báðum skólum er leik- og grunnskóladeild. Öll börn grunnskóladeildarinnar komu til Íslands, ásamt kennurum og nokkrum foreldrum, alls 31. „Þau höfðu samband við okkur í fyrra og langaði að koma af stað samstarfi. Við sóttum um styrk úr Nordplus en fengum ekki, þannig að þau söfnuðu fyrir sinni heimsókn í tvö ár hingað. Við ætlum að sækja um aftur á næstu ári og erum að skoða hvort við komust þá til þeirra í heimsókn“, segir Alice Petersen, kennari í Kerhólsskóla.

Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá

Starfsmenn Kerhólsskóla skipulögðu fjölbreytta og skemmtilega dagskrá á meðan heimsóknin stóð, bæði í skólanum og svo var farið í nokkrar skoðunarferðir. Þema yngsta stigsins var söngur og samvera, miðstigið var með þjóðsögur og náttúruna og unglingastigið tók fyrir heimsmarkmið sameinuðu þjóðanna. Út frá þemunum var ákveðið að fara saman í ferðir en farið var einn daginn á Þingvöll og annan dag var farið að skoða orkusýninguna í Ljósafossvirkjun. Þá var farið í sund á Borg þar sem börnin skemmtu sér saman. „Þar sem Kerhólsskóli er talin lítill skóli með 73 nemendur í grunnskóla- og leikskóladeild fannst okkar börnum gaman að heyra frá gestunum hvað væri gaman að vera í svona stórum skóla þar sem næðist í góð lið í fótboltanum. Nemendur og starfsmenn skólanna náðu vel saman og stefnir Kerhólsskóli á að heimsækja Anholt skole ef fást styrkir til fararinnar“, segir Jóna B. Jónsdóttir, skólastjóri Kerhólsskóla.

MHH

Kerhólsskóli 1: Hópmynd af dönsku og íslensku nemendunum þar sem hópurinn átti saman fjóra góða daga í Kerhólsskóla í Grímsnes og Grafningshreppi. Ljósmynd/Alice Petersen.

Kerhólsskóli 2: Það var mikið fjör í sundlauginni á Borg þegar íslensku og dönsku krakkarnir sameinuðust þar í leik. Ljósmynd/Magnús Hlynur Hreiðarsson.

Nýlegar fréttir
Mánuðir 
bottom of page