top of page

Umhverfisdagar, vorsamtöl og fatamarkaður

Góðan daginn Í næstu viku munum við brjóta aðeins upp skipulagið og halda umhverfisdaga fyrir hádegi mánudaginn 13. maí og þriðjudaginn 14. maí. Eftir hádegi á þriðjudaginn verður svo sundlaugarpartý. Miðvikudaginn 15. maí mun svo Gróa hjúkrunarfræðingur koma og fara yfir alla hjálma hjá nemendum í 1.-4. bekk. Ég vil minna á vorsamtölin föstudaginn 17. maí. Þann dag mæta nemendur aðeins í viðtöl með foreldrum sínum því er enginn skóli né frístund.

!7. maí ætlum við líka að hafa fatamarkað svo við hvetjum alla til þess að koma með föt í næstu viku. Og njóta þess svo að geta valið sér ný föt þegar þið komið í viðtal.

fyrir hönd Kerhólsskóla

Veiga Dögg

Nýlegar fréttir
Mánuðir 
bottom of page