Viðburðadagatal

febrúar 2012
S Þ Mi Fi L
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829EC

Heimasíða Grímsnes- og Grafningshrepps
saft.is
12. október 2011

Lestrarstefna

Hópur starfsmanna vann að því að móta lestrarstefnu skólans veturinn 2009-2010.  Það var þarft mál því lestrarfærni er mikilvægur þáttur þegar kemur að því hvernig nemanda tekst að nýta sér námið sem fram fer í skólanum.  Lestur er einnig vítt hugtak og margt sem fellur þar undir af námskrá hvers skóla.  Aðalmarkmið lestrarstefnunnar sem nú eru höfð að leiðarljósi eru: skýr markmið í kennslunni, gott aðhald fyrir alla sem að kennslunni koma og að hún lýsi æskilegri lestrarfærni nemandans í gegnum alla skólagönguna.

Seint verður það ofsagt að  lestrarþjálfun og góð lestrargeta eru mikilvæg í námi barna og ungmenna. Við í Kerhólsskóla teljum því mikilvægt að setja þá þjálfun í markvissan farveg til að styðja kennara skólans, nemendur og foreldra í því starfi. Þjálfunin á að vera sameiginlegt verkefni skóla og heimilis og áherslur í takt við stöðu nemandans hverju sinni.

Heimalestur á að eiga sér stað fyrir fullorðinn aðila og farið er fram á að lesið sé í 10 – 15 mínútur í hvert sinn.  Kvittunarhefti munu fylgja lestrarbókunum þar sem foreldrum eða fullorðnum aðila er gert að kvitta fyrir heimalesturinn. Þeir nemendur og foreldrar sem standa sig vel fá sýnilega umbun í kvittunarheftið.

Viðmið fyrir ástundun eru skráð fyrir hvern mánuð og gefin einkunn sem birt er í námsmati. Tekið verður tillit til þeirra mánuða sem eru styttri í skólasókn eins og desember og páskamánuðurinn. Þá munu kennarar einnig kvitta fyrir í sömu hefti í hvert sinn sem nemandi les fyrir hann. Heftið skal því fylgja nemandanum bæði heim og í skóla.

Lestrarstefnu skólans í heild sinni er að finna í skýrslunni; Fjölbreyttir kennsluhættir í einstaklingsmiðaðri kennslu, sem var gefin út í desember 2010 .