Viðburðadagatal

maí 2012
S Þ Mi Fi L
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031EC

Heimasíða Grímsnes- og Grafningshrepps
saft.is
1. október 2009

Fjölbr. kennsluhættir

Haustið 2009 hófst þróunarverkefnisvinna sem styrkt var af Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Fjölbreyttir kennsluhættir í einstaklingsmiðaðri kennslu.  Ingvar Sigurgeirsson var skólanum innan handar við verkefnið. 

Starfsfólk Kerhólsskóla skipti sér í tvo hópa og ákvað annar hópurinn að leggja drög að stefnumörkun fyrir skólann um læsi, þ.e. að móta læsisstefnu skólans. Hinn hópurinn ákvað að leggja drög að stefnu skólans um útikennslu og umhverfismennt.

Vinnufundir voru  haldnir og þann 10. júní skiluðu þeir drögum að skýrslum sínum og voru þær ræddar. Lokahendur voru síðan lagðar á verkefnin haustið 2010 og eru þau komin hér í eina sameiginlega lokaskýrslu.

Vinna þessara tveggja hópa var, eins og fram hefur komið, hugsuð sem fyrstu skref í að móta sameiginlega stefnu í þessum tveimur málaflokkum og stefnt var að því að afraksturinn yrði hluti af skólanámskrá Kerhólsskóla.

Hér má finna skýrslu um verkefnið:

Fjölbreyttir kennsluhættir í einstaklingsmiðaðri kennslu