Skólaskrifstofa Suðurlands veitir sérfræðiþjónustu á sviði sálfræði- og kennsluráðgjafar, auk margvíslegrar annarrar ráðgjafar til sveitarstjórna, skólastjórnenda og foreldra. Oftast er það umsjónarmaður sérkennslu og kennarar í samráði við foreldra sem vísa nemendum til þeirra sem fara með þá þjónustu. Umsjónarmaður sérkennslu sér um að koma formlegum umsóknum til Skólaskrifstofu Suðurlands. Þá geta foreldrar leitað aðstoðar þangað að eigin frumkvæði.
Skólaskrifstofa Suðurlands er til húsa að Austurvegi 56 á Selfossi og er síminn 480 8240. Forstöðumaður hennar er Kristín Hreinsdóttir.
Skólasálfræðingur skólans er Alda Sigrún Magnúsdóttir og kennsluráðgjafi skólans er Elínborg Sigurðardóttir. Talmeinafræðingur er Hólmfríður Árnadóttir.



