Viðburðadagatal

febrúar 2012
S Þ Mi Fi L
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829EC

Heimasíða Grímsnes- og Grafningshrepps
saft.is
17. febrúar 2009

7. – 8. árgangur

Fyrirkomulag

7. og 8. bekkur eru saman í vetur, öllum stundum nema að hvor árgangur fær 1 dönskutíma sér og einn enskutíma sömuleiðis.

Nemendur í 8. árgangi mega vera inni í frímínútum á þriðjudögum og fimmtudögum en fara aðra daga út. Ef veður er slæmt eða einhverjar sérstakar aðstæður koma upp mega nemendur vera inni í frímínútum og hádegi.

Íslenskukennslan verður heildstæð þar sem nemendur nýta sér þekkinga sína og færni í öllum verkefnum sem þeir vinna.Stafsetning er kennd með ritun, skrift er hluti af verkefnaskilum og lestur tilheyrir öllum greinum svo einhver dæmi séu nefnd. Íslenskan er að stórum hluta samþætt við aðrar námsgreinar og sérstaklega þá við landafræði og sögu. En lestur kemur víða við sögu og lestur námsbóka eykst hratt með hverjum árgangi úr þessu. Lestrarstefna skólans leggur línurnar með lestrarhraða og sérstakt kvittanahefti er bæði í skóla og heima sem kvittað skal í þegar nemandi les upphátt.

Tölvufærni er sömuleiðis þáttur sem kemur víða inn í nám nemenda og verkefnaskil.

Félagslega verður lögð áhersla á samvinnunám en skilgreina má það þannig:

Við samvinnunám vinna nemendur í hópum og eru samábyrgir fyrir því að leysa viðfangsefni sín og geta í raun ekki lokið þeim nema allir leggi sinn skerf til vinnunnar. Þeir eru því í raun háðir vinnuframlagi hvers annars, rétt eins og iðulega gerist í daglegu lífi. Samvinnunám hefur ætíð félagsleg markmið ekki síður en fræðileg og fjöldi rannsókna hefur leitt í ljós að það skilar nemendum góðum árangri í námsgreinum og er ekki síður vel fallið til að kenna nemendum ýmsa félagslega færni s.s. samvinnu, tillitssemi, hjálpsemi, þolinmæði og getu til að leysa úr ágreiningi.“(Jón Baldvin Hannesson og Rúnar Sigþórsson, 2000).

Samvinnunám er kennsluaðferð þar sem lögð er áhersla á félagsleg markmið nemandans og námslega þætti og hentar því vel til þess að auka samkennd og gagnkvæma ábyrgð í hópnum.Vinnubrögð verða þó blönduð því stundum henta einstaklingsverkefni og vinna betur og því verður reynt að hafa kennsluhætti sem fjölbreytilegasta.

Félagsleg markmið sem lögð eru til grundvallar skipta miklu máli og eru metin með ýmsu móti jafnt og þétt yfir veturinn. Nemendur eru upplýstir um þá þætti sem sérstaklega er unnið með, sé úrbóta þörf.

Kennsluhættir og vinnulag

Í 7.og 8. árgangi eru 8 nemendur og eru þeir saman í öllum greinum nema á föstudögum, þá er tvískiptur dönsku og tölvutími. Valgreinar skipa veglegan sess í stundaskrá vetrarins þar sem leitast verður við að koma til móts við áhugasvið hvers og eins.

Valgreinar eru hluti af skyldunámi. Ætlast er til að í 8., 9. og 10. bekk grunnskóla sé nemendum gefinn kostur á að velja námsgreinar og námssvið. Tilgangurinn með auknu valfrelsi nemenda er að laga námið sem mest að þörfum einstaklingsins og gera hverjum og einum kleift að leggja eigin áherslur í námi miðað við áhugasvið og framtíðaráform í samvinnu við foreldra og forráðamenn, kennara og námsráðgjafa. Inntak valnáms í 8, 9. og 10. bekk má fella í þrjá meginflokka. Í fyrsta lagi er um að ræða val sem miðar að skipulögðum undirbúningi fyrir nám á bóknámsbrautum framhaldsskóla. Í öðru lagi er val sem miðar að skipulögðum undirbúningi undir starfsmenntun, list- eða tækninám. Í þriðja lagi eiga nemendur að geta valið um viðfangsefni sem einkum miða að því að víkka sjóndeildarhring þeirra eða stuðla aðlífsfyllingu.

Heimanám verður aðlagað hverjum og einum. Vikulega fer heim mappa með þeim gögnum sem þarf að hafa til að vinna heimanám í ensku, stærðfræði og íslensku eða hverju því sem umsjónarkennari ákveður að þurfi að vinna. Aðra vikuna fer heim grænt heimanám en þá næstu fer heim blátt. Þann dag sem græna heimanámið fer heim skila nemendur því bláa og svo koll af kolli. Annað heimanám sem til fellur skulu nemendur skrá hjá sér á heimanámsáætlun sína sem ávallt skal geyma í tösku ásamt lestrarkvittanaheftinu. Búast má við að heimanám taki allt frá 30 til 90 mínútur hvern virkan dag. Nemendur vinna út frá áætlun í stærðfræði og náist sú áætlun ekki þarf að leggja harðar að sér og ljúka verkefnum heima.

Námsmat

Námsmat skal endurspegla kennsluhætti og þau verkefni sem unnin hafa verið og skal vera leiðbeinandi þannig.

Umsjónarkennari

Frá byrjun skólaárs og fram til seinni hluta nóvembermánaðar var Árni Sverrir Bjarnason umsjónarkennari 7. -8. bekkjar en þá tók Jóhanna Thorsteinson við bekknum.

Jóhanna Thorsteinson

Sjá nánar námsgreinahluta skólanámskrár Kerhólsskóla, 2011-2012