Nemendur í 1.-4. bekk eru með styttri skóladaga en eldri nemendur skólans. Á mánudögum og fimmtudögum lýkur kennslu hjá þeim kl. 13:50 en á þriðjudögum kl. 14:30. Þá er boðið upp á Skólasel fyrir þessa nemendur sem er í beinu framhaldi af kennslu og lýkur kl. 15:25. Í Skólaseli fá nemendur að leika sér frjálst, teikna og mála, lesa o.fl. Umsjón með skólaseli hefur stuðningsfulltrúi skólans.
Forráðamenn þurfa að skrá börn sín í Skólasel og geta þau verið einn dag, tvo daga eða þrjá daga í viku.



