Í Félagsheimilinu Borg er rekið skólamötuneyti fyrir leik- og grunnskólann.
Leikskólanemendur matast í leikskólahúsnæðinu kl. 11:30. Matartími grunnskólanemenda er frá kl. 12:20 – 12:50.
Kennarar og starfsfólk skólans borða með nemendum í hádeginu. Þannig skapast meiri ró við borðhaldið og starfsfólkið kynnist nemendum á annan hátt en í kennslustundum eða í hinu daglega starfi.
Mat fá nemendur á kostnaðarverði og greiðist hann mánaðarlega samkvæmt reikningi. Áhersla er lögð á hollan og fjölbreyttan mat.
Nauðsynlegt er að nemendur gangi vel um, sýni góða hegðun og borði vel. Grunnskólanemendum ber að sitja um kyrrt í að minnsta kosti 10 mínútur við matinn áður en þeir ganga frá og fara út að leika sér.
Á heimasíðu skólans má finna matseðla hvers mánaðar.



