Viðburðadagatal

febrúar 2012
S Þ Mi Fi L
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829EC

Heimasíða Grímsnes- og Grafningshrepps
saft.is
12. október 2011

Grenndarsamfélagið

Skólinn hefur verið í mjög góðu samstarfi við Sesseljuhús sem er umhverfissetur á Sólheimum Grímsnesi. Það samstarf hefur varað allt frá árinu 2006. Nemendur hafa sett upp sýningar þar og til að mynda var sett upp stór sýning haustið 2007 sem hét; Náttúran og orkan. Allir nemendur grunnskóladeildar tóku þátt í henni.

Haustið 2008 var stigið nýtt skref í samstarfinu en þá byrjuðu nemendur í 8. bekk að fara á Sólheima í sérstakan námsáfanga sem ber yfirheitið; Sjálfbær þróun í sjálfbæru samfélagi. Námið stendur yfir á 1. önn og hluta af 3. önn. Nemendur kynnast samfélaginu á Sólheimum og heimsækja hin ýmsu verkstæði og vinnustofur. Þeir eru síðan með kynningu og sýningu í nóvemberlok í Sesseljuhúsi á því sem gert hefur verið á haustönninni. Megin þema námskeiðisins á 1. önn hefur verið skógar en í ár er ár skóga hjá Sameinuðu þjóðunum.

Samstarf þetta er liður í því að rækta samband við grenndarsamfélagið.