Viðburðadagatal

maí 2012
S Þ Mi Fi L
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031EC

Heimasíða Grímsnes- og Grafningshrepps
saft.is
12. október 2011

List- og verkgreinar

Allir eru sammála um gildi list- og verkgreina fyrir skólastarf. Talsverð áhersla hefur verið lögð á þessar greinar undanfarin ár í skólanum.

Skólinn er fyrir alla og þess vegna skiptir máli að koma til móts við áhuga hvers og eins. Það er nefnilega svo, að það eru ekki allir sem finna sig í bóklegu námi en blómstra í því verklega. Skólanum ber að koma til móts við þarfir þessara nemenda því list- og verkgreinar skipta miklu máli fyrir þroska og framtíð einstaklingsins. Bóklegar og verklegar greinar styðja hverjar aðrar og er samþætting námsgreina ein leið til árangurs.

Nokkrum sinnum hafa verið fengnir utanaðkomandi aðilar til að vinna að ákveðnum listrænum verkefnum með nemendum og starfsfólki skólans. Má þar nefna, að skólaárin 2005-2007 hjálpaði Ólafur Jens Sigurðsson leikstjóri nemendum í leiklist og sett upp leikverk með þeim. Veturinn 2006-2007 var Stefán Þorleifsson tónmenntakennari fenginn til að vinna með nemendum í tónlist og var sett upp  tónlistardagskrá með þeim og veturinn 2007-2008 kom Ingibjörg Erlingsdóttir tónmenntakennari og aðstoðaði okkar að setja upp Skilaboðaskjóðuna á eftirminnilegan hátt. Undanfarin tvö ár hafa umsjónarkennarar aðstoðað nemendur við að setja upp leikverk sín á árshátíð skólans.

Myndmennt,textílmennt, heimilisfræði, hönnun og smíði, íþróttir, sund og dans eru allt greinar sem falla undir list- og verkgreinar.

Árshátíð skólans

Árshátíðin er árviss viðburður sem er haldin síðasta miðvikudag fyrir páskafrí. Fyrir árshátíðina fer mikill tími í ýmsan undirbúning, s.s. leik-, söng-, og eða dansæfingar og ekki síst leikmunagerð.  Með árshátíðinni er verið að samþætta hinar ýmsu list- og verkgreinar, íslensku, lífsleikni og er hún gjarnan sá þáttur skólastarfsins sem stendur upp úr í huga nemenda, foreldra og starfsmanna ár hvert.