Viðburðadagatal

febrúar 2012
S Þ Mi Fi L
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829EC

Heimasíða Grímsnes- og Grafningshrepps
saft.is
29. júní 2007

Skólinn

 

Kerhólsskóli í Grímsnes- og Grafningshreppi varð til við sameiningu leikskólans Kátuborgar og Grunnskólans Ljósuborgar 1. janúar 2011. Í leikskóladeildinni eru nemendur frá 12 mánaða aldri og í grunnskóladeildinni eru nemendur í 1.-8. bekk.

Grunnskólinn Ljósaborg var vígður haustið 2005 í nýrri skólabyggingu á Borg og var fyrstu tvö skólaárin rekinn í samstarfi við Bláskógabyggð. Haustið 2007 lauk því samstarfi og hefur Grímsnes- og Grafningshreppur rekið skólana sína frá þeim tíma.

Eldri grunnskólanemendur í Grímsnes- og Grafningshreppi  sækja Grunnskóla Bláskóga­byggðar í Reykholti í Biskups­tungum.

Fram til vorsins 2009 sóttu nemendur úr Þingvallasveit skólann. Áður fór grunnskólastarf hreppanna fram á Ljósafossi en þar hafði verið skóli frá því um miðjan fimmta áratug síðustu aldar.

Kerhólsskóli vinnur í anda einstaklingsmiðaðra kennsluhátta, umhverfismenntar auk þess sem áhersla er lögð á list og verkgreinar.

Samkennsla og samvinna árganga er ríkjandi og áhersla er lögð á teymisvinnu kennara. 

 

Borg, 10. nóvember 2011,

Hilmar Björgvinsson skólastjóri