Viðburðadagatal

maí 2012
S Þ Mi Fi L
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031EC

Heimasíða Grímsnes- og Grafningshrepps
saft.is
12. október 2011

Fréttir

 

Jólafréttir.
 
Við erum byrjuð að syngja jólalögin. Það er alltaf jafn gaman.
 
Á þriðjudaginn í næstu viku þ.e. 29. nóv ætlum við að baka piparkökur með börnunum. Miðvikudaginn 30. nóv ætlum við að skreyta kökurnar. Föstudaginn 9. des. ætlum við að bjóða ykkur í kaffi og borða piparkökurnar.
 
Jólaballið verður 20. desember. Í ár verður jólaballið með öðru sniði en venjulega þar sem foreldrafélagið stendur fyrir sameiginlegu balli að loknum hátíðarmálsverði. Foreldrar, systkin, ömmur og afar, frænkur og frændur eru boðin sérstaklega velkomin á jólaballið.
Jólaballið verður nánar auglýst síðar.
 
Jólakveðjur,
Starfsfólk Kerhólsskóla leikskóladeildar.

 

Vikan 17.-22. október 2011

Rauði kisuhópurinn er búinn að vera duglegur þessa vikuna. Við máluðum með fingramálningu í myndlist, fórum í íþróttahúsið og hittum Hófí íþróttakennara, fórum í skóginn og lékum okkur fullt þar. Í tónlistinni fengum að heyra sögu um steinahrúgu uppi á fjalli sem fór að hreyfast og endaði á að steinarnir höfðu breyst í stór tröll, því þetta voru tröll sem höfðu einu sinni breyst í steina. Tröllin voru vöknuð og stigu trylltan dans á fjallinu. Reyndar kom sólin aftur á meðan þau dönsuðu, en af því að þau voru svo upptekin af dansinum höfðu þau gleymt að fylgjast með henni, og þau breyttust aftur í steina! Við hlustuðum síðan á “trölladansinn” (In the Hall of the Mountain King eftir Grieg) og lékum sjálf tröllin sem voru að rumska…