Starfið og áherslur:
Í leikskóladeild Kerhólsskóla er lögð áhersla á útinám, eldri hópar fara í skóginn einu sinni í viku, allt skólaárið og dvelja þar part úr degi við leik og störf.
Í hópastarfi er unnið með listsköpun, tónlist og hreyfingu, hver námsþáttur einu sinni í viku.
Lögð er áhersla á einstaklingsmiðað nám þar sem barninu er mætt á þeim stað sem það er statt og unnið út frá því.
Leikskóladeildin og grunnskóladeildin eru í samvinnu með verkefni sem kallast “Vinir í skóginum”. Eru það nemendur í 5. og 6. bekk sem taka þátt í ýmsu starfi með börnunum í leikskóladeildinni og á hver leikskólanemandi vin í 5. eða 6. bekk. Sami vinur helst út árið og styrkjast tengslin þegar líður á veturinn.
Hópar:
Börnunum er skipt í þrjá hópa, eftir aldri. Hóparnir heita bæði lita og dýra nöfnum, elsti hópurinn er Blái hundahópur, miðhópurinn er Rauði kisuhópur og yngsti hópurinn er Guli músahópur.
Í vetur eru starfandi við leikskóladeild Kerhólsskóla fimm starfsmenn auk skólastjóra. Svanhildur Eiríksdóttir deildarstjóri og hópstjóri Bláa hundahóps, Birna Guðrún Jónsdóttir leikskólakennari og hópstjóri Rauða kisuhóps, Margrét Gunnarsdóttir leiðbeinandi og hópsstjóri Gula músahóps, Ursula Filmer (Úlla) starfsmaður í leikskóla og Kristín Konráðsdóttir leiðbeinandi sem vinnur með Margréti og Gula músahóp.
Viðtalstímar deildarstjóra og hópstjóra:
Svanhildur er með viðtalstíma á þriðjudögum kl. 13:00-14:00
Birna er með viðtalstíma á föstudögum kl. 10:00-10:30
Margrét er með viðtalstíma á fimmtudögum kl. 10:00-10:30
Hvetjum við foreldra til að nýta sér viðtalstíma starfsfólks!
Netföng leikskóladeildar:
Hægt er að senda fyrirspurnir eða upplýsingar á netföng starfsfólks:
| Hilmar Björgvinsson, skólastjóri | Netfang: hilmar@kerholsskoli.is |
| Svanhildur Eiríksdóttir, deildarstjóri | Netfang: svanhildur@kerholsskoli.is |
| Birna Guðrún Jónsdóttir, leikskólakennari | Netfang: birna@kerholsskoli.is |
| Margrét Gunnarsdóttir, leiðbeinandi | Neftang: margret@kerholsskoli.is |
| Ursula Filmer, starfsmaður í leikskóla | Netfang: ulla@kerholsskoli.is |
| Kristín Konráðsdóttir, leiðbeinandi | Netfang: kristin@kerholsskoli.is |
| Leikskóladeild | Netfang: leikskoladeild@kerholsskoli.is |
Dagskipulag leikskóladeildar:
| Kl. 8:00-8:30 | Leikskóladeild opnar, rólegur leikur |
| Kl. 8:30-9:00 | Morgunverður |
| Kl. 9:00-9:30 | Hópastarf |
| Kl. 9:30-10:00 | Gera sig klára fyrir útiveru |
| Kl. 10:00-11:20 | Útivera |
| Kl. 11:20-11:35 | Söngstund |
| Kl. 11:35-12:10 | Hádegisverður |
| Kl. 12:10-13:00 | Hvíld |
| Kl. 13:00-15:00 | Útivist/frjáls leikur/hópastarf |
| Kl. 15:00-15:30 | Hressing |
| Kl. 15:30-16:00 | Frjáls leikur |
| Kl. 16:00 | Leikskóladeild lokar |
|
|
|||||||
|
Fjöldi barna í hópum |
|||||||
|
|
|||||||
|
Drengir |
Stúlkur |
Alls |
||||||||
|
-Allir- |
9 |
9 |
18 |
|||||||
|
1. Guli músahópur |
4 |
1 |
5 |
|||||||
|
2. Rauði kisuhópur |
3 |
3 |
6 |
|||||||
|
3. Blái hundahópur |
2 |
5 |
7 |
|||||||
|
|
||||||||||
|
Drengir: 9 Stúlkur: 9 Alls: 18 |
||||||||||



