Jólafréttir.
Við erum byrjuð að syngja jólalögin. Það er alltaf jafn gaman.
Á þriðjudaginn í næstu viku þ.e. 29. nóv ætlum við að baka piparkökur með börnunum. Miðvikudaginn 30. nóv ætlum við að skreyta kökurnar. Föstudaginn 9. des. ætlum við að bjóða ykkur í kaffi og borða piparkökurnar.
Jólaballið verður 20. desember. Í ár verður jólaballið með öðru sniði en venjulega þar sem foreldrafélagið stendur fyrir sameiginlegu balli að loknum hátíðarmálsverði. Foreldrar, systkin, ömmur og afar, frænkur og frændur eru boðin sérstaklega velkomin á jólaballið.
Jólaballið verður nánar auglýst síðar.
Jólakveðjur,
Starfsfólk Kerhólsskóla leikskóladeildar.



