Fundur foreldrafélaga Grunnskólans Ljósuborgar og Leikskólans Kátuborgar.
Haldinn í Félagsheimilinu Borg, fimmtudaginn 17. febrúar kl. 20:00.
Dagskrá fundarins:
1. Foreldrafélög Leikskólans Kátuborgar og Grunnskólans Ljósuborgar lögð niður.
2. Stofnun nýs foreldrafélags sameinaðs leik- og grunnskóla
3. Drög að lögum nýja félagsins yfirfarin
4. Kosning í stjórn foreldrafélagsins
5. Kosning skoðunarmanna reikninga
6. Önnur mál
1. Foreldrafélög Leikskólans Kátuborgar og Grunnskólans Ljósuborgar lögð niður.
Þar sem leikskólinn og grunnskólinn hafa verið sameinaðir í einn skóla liggur beint við að sameina foreldrafélög þeirra einnig. Samþykkt að leggja niður bæði foreldrafélögin.
2. Stofnun nýs foreldrafélags sameinaðs leik- og grunnskóla.
Samþykkt að stofna nýtt foreldrafélag leik- og grunnskóla í Grímsnes- og Grafningshreppi.
3. Drög að lögum nýja félagsins yfirfarin.
Athugasemdir gerðar við vissa liði og lögin síðan samþykkt.
4. Kosning í stjórn foreldrafélagsins.
Hugrún Sigurðardóttir
Guðrún Sigurhjartardóttir
Birna Guðrún Jónsdóttir
Sigurður Halldórsson
Formaður kosinn Pétur Thomsen
5. Kosning skoðunarmanna reikninga.
Valgeir Fridolf Backman
Hörður Óli Guðmundsson
6. Önnur mál.
Rætt um gjaldtöku í félaginu. Umræðu og ákvörðun um gjaldtöku vísað til stjórnar félagsins.
Hörður Óli bað um orðið. Óskaði stjórninni til hamingju með kjörið, þakkaði fyrri stjórnum unnin störf. Þakkaði fyrir gott jólaball.
Hörður greindi frá starfsemi félagsmiðstöðvarinnar. Þythokkí hefur verið keypt. Farið hefur verið á nokkur böll. Farið verður á Samfés. Farið yfir reglur Samfés og þá sérstaklega nýjar reglur um klæðaburð á Samfés hátíðinni. Félagsmiðstöðin hefur fengið úthlutað 12 miðum á hátíðina.
Stefnt er að bíói í vor og er þá hugmyndin að vera með bíó í Félagsheimilinu Borg. Valgeiri benti á að hægt væri að nota Sólheimabíó og var vel í það tekið.
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 21.00.
Kaffi í boði stjórna fyrrverandi foreldrafélaga.
Fundargerð ritaði Birna Guðrún Jónsdóttir.
Á fundinn mættu:
Birna Guðrún Jónsdóttir
Sigurður Karl Jónsson
Sigurður Halldórsson
Hörður Óli Guðmundsson
Kristín Jóhannsdóttir
Valgeir Fridolf Backman
Hugrún Sigurðardóttir
Guðrún Sigurhjartardóttir
Eva Björk Lárusdóttir
Elísabet Arnardóttir
Karen Ósk Sigurðardóttir
Pétur Thomsen
Margrét Gunnarsdóttir



