Viðburðadagatal

maí 2012
S Þ Mi Fi L
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031EC

Heimasíða Grímsnes- og Grafningshrepps
saft.is
15. október 2011

Aðalfundur 2011

Aðalfundur Foreldrafélags Kerhólsskóla. Haldinn þriðjudaginn 11. október 2011 kl. 20:00 í Stjórnsýsluhúsinu að Borg.

 

Dagskrá:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Skýrsla stjórnar
  3. Skýrslur nefnda
  4. Lagabreytingar 
  • Breyting á 1. grein vegna nýs nafns á skólanum, verði:

Félagið heitir Foreldrafélag Kerhólsskóla.
Félagar teljast allir forráðamenn nemenda skólans. Félagið er með varnarþing í Grímsnes- og Grafningshreppi.

  • Breyting á 6. grein.

Bæta inn á verkefni aðalfundar kosningu fulltrúa í fræðslunefnd. 

  1. Reikningar lagðir fram til afgreiðslu
  2. Kosning formanns foreldrafélags og tveggja stjórnarmanna
  3. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
  4. Skýrsla fulltrúa foreldra í skólaráði
  5. Kosning fulltrúa í skólaráð samkvæmt starfsreglum félagsins
  6. Kosning fulltrúa í fræðslunefnd
  7. Kynning á stöðu skólabyggingar, teikningar til sýnis
  8. Önnur mál sem fundurinn samþykkir að taka fyrir

 

Pétur Thomsen formaður foreldrafélagsins setti fundinn og bauð sig fram sem fundarstjóra.

 

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara

Fundarstjóri kosinn Pétur Thomsen og fundarritari Birna Guðrún Jónsdóttir.

 

2. Skýrsla stjórnar

Pétur fór yfir helstu atriði í starfi foreldrafélagsins frá því það var stofnað í febrúar 2011. Nefndi hann öskudagsskemmtun, þar sem foreldrafélagið sá um að verlsa sælgæti og “köttinn” í tunnuna, stóru upplestrarkeppnina þar sem foreldrar í 7.-8. bekk sáu um kaffihlaðborð, árshátíð grunnskóladeildar sem haldin var 13. mars þar sem foreldrar og nemendar í 7.-8. bekk sáu um utanumhald vegna veitinga og undirbúning og frágang í sal. Breyting var gerð á hlaðborðinu í ár og í stað þess að vera með kökur samanstóð hlaðborðið af ýmsum léttum smáréttum, pitsur, pastaréttir, kjúklingaleggir og heitir brauðréttir. Skoðanakönnun var gerð meðal barna skólans varðandi hvað þau vildu að foreldrafélagið gerði með þeim. Niðurstaðan var að fara í keilu og fá pitsu á eftir. Bekkjarfulltrúar héldu utanum ferðina ásamt stjórn félagsins. Foreldrafélagið hélt páskabingó og fór þátttaka fram úr björtustu vonum. Þórir Ingvarsson rannsóknarlögreglumaður hjá kynferðisbrotadeild lögreglunnar í Rvk. hélt fyrirlestur um netnotkun barna og unglinga. Foreldrafélagið sá um grillið á vorhátíð grunnskóladeildar sem haldin var í Þrastarskógi. Foreldrafélagið hélt sumarhátíð leikskóladeildar í fyrsta skipti í byrjun júni og var það hin mesta skemmtun. Farið var í Slakka og haldin grillveilsa þegar heim var komið. Leggur stjórnin til að Slakkaferðin verði ekki hluti af sumarhátíðinni heldur verði það aðskilinn viðburður eins og verið hefur hingað til.

 

3. Skýrsla nefnda

Birna kynnti skýrslu jólaballsnefndar. Rætt var um breytingu á tímasetningu jólaballs sem stjórn foreldrafélagsins leggur til að verði gerð. Fært frá 26. desember til síðasta dags grunnskóladeildar fyrir jólafrí, sama dag og litlu jól skólans. Almenn ánægja var með tillöguna.

Kosið í jólaballsnefnd, Valgeir Fridolf Bachman kosinn formaður nefndarinnar, Dagný Davíðsdóttir og Eva Björk Kristborgardóttir.

 

4. Lagabreytingar

  • Breyting á 1. grein vegna nýs nafns á skólanum, verði:

Félagið heitir Foreldrafélag Kerhólsskóla.
Félagar teljast allir forráðamenn nemenda skólans. Félagið er með varnarþing í Grímsnes- og Grafningshreppi.

  • Breyting á 6. grein.

Bæta inn á verkefni aðalfundar kosningu fulltrúa í fræðslunefnd. 

Breytingar á lögum samþykktar.

 

5. Reikningar lagðir fram til afgreiðslu

Hugrún lagði fram reikninga félagsins og voru þeir samþykktir af skoðunarmanni reikninga foreldrafélagsins, Valgeiri Fridolf Backman.

Hugrún kynnti stöðu reikninga fyrir fundinum. Staða reikninga er 49.204, leikskóladeild 14.000.- og grunnskóladeild 31.000.-
Eftirstöðvar í ferðasjóð eru 31.672.-

 

6. Kosning formanns foreldrafélags og tveggja stjónarmanna

Jóhanna B. Kristjánsdóttir bauð sig fram í stjórn foreldrafélagsins og var hún kosin á fundinum. Kemur hún fyrir Guðrúnu Sigurhjartardóttur. Pétur Thomsen kosinn til áframhaldandi setu. Sigurður Halldórsson, Birna Guðrún Jónsdóttir og Hugrún Sigurðardóttir sitja áfram.

Pétur Thomsen kosinn formaður félagsins.

 

7. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga

Valgeir Fridolf Backman bauð sig fram til áframhaldandi starfa. Guðrún Sigurhjartardóttir bauð sig einnig fram.

Skoðunarmenn samþykktir.

 

8. Skýrsla fulltrúa foreldra í skólaráði

Birna kynnt skýrslu foreldra í skólaráði.

 

9. Kosning fulltrúa í skólaráð

Karen Sigurðardóttir kosin fulltrúi foreldra við leikskóladeild

Eva Björk Kristborgardóttir kosin fulltrúi foreldra við grunnskóladeild

Sirrý Birgis kosin varamaður fulltrúa foreldra í skólaráði

Sigurður Halldórsson kosinn annar varamaður fulltrúa foreldra í skólaráði

 

10. Kosning fulltrúa í fræðslunefnd

Birgir Leó Ólafsson kosinn fulltrúi foreldra í fræðslunefnd

Pétur Thomsen kosinn varamaður fulltrúa foreldra í fræðslunefnd

 

11. Kynning á stöðu skólabyggingar, teikningar til sýnis

Pétur sýndi teikningar af skólabyggingunni eins og hún lítur út í dag. Sagt frá ákvörðuninni um að byggja nýjan skóla sem hýsi bæði skólastigin. Kynnt ferlið við hönnun skólahússins. Guðný og Hilmar kynntu teikningarnar.

 

11. Önnur mál

  • Afmælisboð. Bíómyndir í afmælisboðum. Ósætti við að börn fái að horfa á myndir í afmælisboðum sem eru bannaðar. Beint til foreldra að leyfa ekki börnum að horfa á myndir sem eru bannaðar þeirra aldri.
  • Virða útivistarreglur. Hugmynd að gefa út plagg þar sem mælt er með að farið sé eftir vissum reglum. Netnotkun, stríðni og fleira. Beint til stjórnar að setja saman vissar reglur sem dreift verður á foreldra.
  • Bekkjarfulltrúar leikskóladeildar kosnir. Karítas Ottesen Ásmundsdóttir bauð sig fram og Ásta Björk Björnsdóttir, samþykkt einróma. Vantar möppu í 4. bekk.
  • Bekkjarfulltrúar grunnskóladeildar eru:
  1. bekkur.    Gunnar Birkir Sigurðsson
  2. bekkur.    Guðmundur Björgvin Guðmundsson
  3. bekkur.    Sigurleif Sigurðardóttir
  4. bekkur.    Kristín Lilja Birgisdóttir
  5. bekkur.    Tína Ósk Nielsen Filmer
  6. bekkur.    Paulina Martyna Pinkowicz
  7. bekkur.    Hjalti Guðjónsson
  8. bekkur.    Örn Pálmi Ragnarsson
Foreldrar ákveða sjálfir hvor þeirra taki að sér að vera bekkjarfulltrúi og koma upplýsingum um ákvörðunina til stjórnar foreldrafélagsins.


Fundi slitið kl. 21:45.

Boðið upp á kaffi og léttar veitingar í boði foreldrafélagsins.