Viðburðadagatal

maí 2012
S Þ Mi Fi L
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031EC

Heimasíða Grímsnes- og Grafningshrepps
saft.is
15. október 2011

Aðalfundur 2008

Aðalfundur foreldrafélags Grunnskólans Ljósuborgar.

Grunnskólanum Ljósuborg 8. okt. 2008.

 

Óskar Jón Helgason setti fundinn kl. 20:00, hann kynnti starf foreldrafélagsins

  1. Síðastliðinn vetur, t.d jólaball og leikhúsferð, lýsti einnig ánægju með gott skólastarf. Las 3. og 4. greinar laga foreldrafélagsins sem fjalla um markmið félagsins og hvernig þeim skuli náð. Einnig kynnti hann skólaráðið sem tekur við af foreldraráði, í ljós kom að gera þyrfti breytingar á orðalagi 4. og 5. greinar og samþykkti fundurinn það. Birna Guðrún Jónsdóttir gjaldkeri sagði líka nokkur orð um fjármál félagsins.
  1. Kosið í skólaráð. Fyrrverandi foreldraráð; Óskar Jón Helgason, Margrét Gunnarsdóttir og Hörður Óli Guðmundson gáfu kost á sér í skólaráð og voru þau kosin. Hörður Óli og Margrét aðalmenn og Óskar varamaður.
  1. Kosið var í stjórn foreldrafélagsins. Óskar og Birna hættu en þau hafa starfað í stjórninni í 2 ár, í stað þeirra og Cees (fyrrv. formanns) voru kosin: Guðný Tómasdóttir (móðir Hörpu og Telmu), Pétur Thomsen (pabbi Inger Erlu) og Guðrún Sigurhjartardóttir (mamma Rutar og Tinnu). Auk þeirra eru Áslaug Þórðardóttir og Helga Haraldsdóttir áfram í stjórn.
  1. Bekkjatenglaskipti.
  • 1. bekkur: Ellý Alexandra
  • 2. bekkur: Kristrún Urður
  • 3. bekkur: Guðjón Guðjónsson
  • 4. bekkur: Aron Þormar
  • 5. bekkur: Elías Svanur
  • 6. bekkur: Inger Erla
  • 7. bekkur: Árni Kristinn
  • 8. bekkur: Elías Bergmann

Foreldrar/forráðamenn þessara barna eru nýju bekkjatenglarnir.

  1. Kosning í leik-og grunnskólaráð. Óskar lagði til að foreldrafélag tilnefndi fulltrúa á fundi.
  1. Að lokum var umræða um fjáröflun; hvernig og hvort hún ætti að vera. Síðastliðinn vetur var ákveðið að taka upp félagsgjald kr. 3.000 yfir veturinn og gekk það ekki nógu vel. Að lokum var ákveðið að reyna það aftur en senda nú tölvupóst í stað gíroseðla.

Fundi var slitið kl. 21:15.