Starfsmenn Kerhólsskóla leggja mikla áherslu á gott samstarf við foreldra.
Foreldrar eru ávallt velkomnir að heimsækja skólann þegar kennsla stendur yfir. Alla miðvikudagsmorgna á milli kl. 8:30 – 9:50 er sérstakt foreldrakaffi. Þá geta foreldrar spjallað við skólastjóra um skólastarfið og gengið um skólann og séð starfsmenn og nemendur við vinnu.
Kennarar eru með fasta viðtalstíma í hverri viku þar sem foreldrar geta haft samband símleiðis eða komið í skólann og hitt kennara. Þrisvar sinnum yfir veturinn eru samtalsdagar þar sem umsjónarkennarar hitta foreldra og nemendur og ræða námsframmistöðu og annað sem aðilar telja mikilvægt að ræða. Einnig eru þá aðrir starfsmenn til viðtals.
Nú á upplýsingaöld er einnig auðvelt að nota tölvupóst til að koma upplýsingum eða fyrirspurnum á framfæri við skólann.
Við skólann er starfandi skólaráð, foreldrafélag og bekkjartenglar.



