Í dag hófst formlega vinna við útilistaverk við skólann í samstarfi við Halldór Ásgeirsson listamann. Allir nemendur söfnuðust saman í Hjálparsveitarhúsi Tintron þar sem verkefnið var opnað með því að Halldór bræddi hraun. Hraunið var sótt um morguninn í efnisnámurnar í Seyðishólum. Það var mikilfengleg sjón að sjá hraunið bráðna niður og mynda nornanálar. Örmjóir [...]







