Fimmtudaginn 23. febrúar mun Kolbrún Baldursdóttir, sálfræðingur, flytja fyrirlestur í Grunnskóla Bláskógabyggðar um einelti. Þar mun hún meðal annars fjalla um:
- Helstu birtingarmyndir eineltis
- Hvernig fyrirbyggjandi vinnu er best háttað og mikilvægi samvinnu heimila / skóla í því tilliti?
- Hvernig er að vera í sporum foreldra geranda, foreldra þolanda?
- Hlutverk foreldra þegar leiða þarf mál til lykta
- Hvaða þættir hafa jákvæð áhrif á úrvinnslu og hvaða þættir hindra úrvinnslu?
Fyrirlesturinn hefst kl. 17:00 og tekur um klukkustund. Heitt verður á könnunni, og velkomið að koma með eitthvað gott með kaffinu og eiga spjall saman á eftir.
Erindið er öllum opið og hvetjum við foreldra, kennara og alla þá sem umhugað er um góða líðan barna að koma og hlýða á. Heimasíða Kolbrúnar veitir einnig góðar upplýsingar
Fyrir hönd foreldrafélags Grunnskóla Bláskógabyggðar,
Agla Þyri Kristjánsdóttir



