Öskudagurinn var virkilega skemmtilegur í ár eins og undanfarin ár. Börnin í leikskóladeildinni mættu í náttfötum í skólann. Eftir morgunmat fengu þau að velja sér hvaða fígúru sem er og voru máluð í framan. Því næst tók við leikjastund þar sem farið var í ýmsa hreyfileiki m.a. “zikka zakka”, “pabbi, mamma og börnin” og “Hókí pókí”. [...]



