Viðburðadagatal

febrúar 2012
S Þ Mi Fi L
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829EC

Heimasíða Grímsnes- og Grafningshrepps
saft.is
18. janúar 2012

Leikskóladeild lokar fyrr

[ 1. febrúar 2012; 00:00 to 16:00. ] Starfsmenn leik- og grunnskólans eru að vinna að þróunarverkefninu ,,Til móts við náttúruna”. Einn liður í því er að vinna að því að fá Grænfánann. Til þess að verkefnið gangi sem best þurfa starfsmenn að fá tækifæri til að vinna að því í sameiningu og funda. Þess vegna verður leikskóladeildinni lokað kl. 14:00 miðvikudaginn 1. febrúar [...]

Lesa meira

26. janúar 2012

Dagur leikskólans

[ 6. febrúar 2012; ] Mánudaginn 6. febrúar verður dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins. Kerhólsskóli mun að sjálfsögðu halda upp á daginn og segja nánar frá því þegar nær dregur. Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, mennta- og menningarmála-ráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Sjá nánar hér.

Lesa meira

18. janúar 2012

Starfsdagur – grunnskóladeild

[ 6. febrúar 2012; ] Starfsdagur í grunnskóladeild Kerhólsskóla. Nemendur í fríi. Kennarar í námsmatsvinnu.

Lesa meira

6. febrúar 2012

,,Góðan daginn nörd”

IMG_6261

Í dag, mánudaginn 6. febrúar er dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins. Kerhólsskóli hélt upp á daginn með því að hafa opið hús fyrir foreldra í leikskóladeildinni í morgun og boðið var upp á hafragraut ,,Svanhildar”, ávexti og kaffi. Börnin fengu að koma með dót í skólann og bakaðar voru vöfflur síðdegis í tilefni dagsins. Skólastjóri afhenti sveitarstjóra [...]

Lesa meira

18. janúar 2012

Starfsdagur – grunnskóladeild

[ 7. febrúar 2012; ] Starfsdagur í grunnskóladeild Kerhólsskóla. Nemendur í fríi. Kennarar í námsmatsvinnu.

Lesa meira

2. febrúar 2012

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn

[ 7. febrúar 2012; ] Alþjóðlegi netöryggisdagurinn verður haldinn hátíðlegur í níunda sinn þann 7. febrúar næstkomandi. Þemað í ár er „Tengjum kynslóðir” og munu yfir 60 þjóðir um allan heim standa fyrir skipulagðri dagskrá þennan dag þar sem til umfjöllunar verða ýmis verkefni þar sem tæknin tengir kynslóðir saman. Áhersla verður lögð á að kynslóðir miðli af þekkingu sinni [...]

Lesa meira

9. febrúar 2012

,,Ég á ekki frumskóg”

Gullkorn leikskólabarna

Barn heyrir orðið frumskógur og segir: „Ég á ekki frumskóg ég á bara kuldaskó”. Kennari sem er að vinna með stafrófið spyr börnin hvort G geti sagt nafnið sitt sjálfur. Stúlka nokkur svarar galvösk: „Ha,ha, nei, stafir kunna ekki að tala sko!“  Tvö börn skoða í bókum dýr. Annað segir;  ,,Sjáðu þetta er mu” , Hitt svarar [...]

Lesa meira

Mat á skólastarfi

DSC08607

Þessa dagana eru  foreldrar og starfsmenn leik- og grunnskólans  að svara rafrænum spurningakönnunum sem varða nám og kennslu  í skólanum. Kannanirnar voru sendar út í tölvupósti.  Góð  þátttaka allra í matinu er skólanum mikils virði því með því sjáum við hvað vel er gert í skólanum og hvað þarf að bæta. Nemendur svöruðu könnunum í skólanum síðastliðinn [...]

Lesa meira

10. febrúar 2012

Hvatningarverðlaun til 1.- 4. bekkjar

IMG_9715

Kerhólsskóli tekur þátt í Lífshlaupinu nú í ár eins undanfarin ár. Í vikunni var hópurinn í 1. -4. bekk í Kerhólsskóla dreginn út úr hópi þeirra sem skráðir eru til þátttöku. Í verðlaun hlutu þau glæsilega ávaxtakörfu.

Lesa meira

13. febrúar 2012

Frá Leikfélagi Sólheima

Kardimommubærinn

Nú eru að hefjast æfingar hjá Leikfélagi Sólheima á hinu sígilda verki Thorbjörns Egner, Kardimommubænum. Sýningin er stór og fjölbreytt og krefst margra leikara. Þess vegna langar Sólheimum til þess að bjóða nemendum í grunnskóladeild Kerhólsskóla að taka þátt í leiksýningunni með okkur. Fjölmörg hlutverk eru í boði, börn og alls konar dýr þannig að [...]

Lesa meira