Viðburðadagatal

janúar 2012
S Þ Mi Fi L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031EC

Heimasíða Grímsnes- og Grafningshrepps
saft.is
3. desember 2011

Starfsdagur í leikskóladeildinni

[ 2. janúar 2012; ] Á nýju ári er starfsdagur í leikskóladeildinni mánudaginn 2. janúar og hún verður opin frá og með þriðjudeginum 3. janúar.

Lesa meira

Leikskóladeildin opnar á nýju ári

[ 3. janúar 2012; ] Á nýju ári opnar leikskóladeildin fyrir nemendur þriðjudaginn 3. janúar 2012.

Lesa meira

Starfsdagur í grunnskóladeildinni

[ 4. janúar 2012; ] Í grunnskóladeildinni er starfsdagur miðvikudaginn 4. janúar og kennsla hefst fimmtudaginn 5. janúar samkvæmt stundaskrá.

Lesa meira

Kennsla hefst í grunnskóladeildinni eftir jólaleyfi

[ 5. janúar 2012; ] Í grunnskóladeildinni hefst kennsla  fimmtudaginn 5. janúar samkvæmt stundaskrá.

Lesa meira

5. janúar 2012

Gleðilegt nýtt ár

IMG_9535

Skólastarfið í Kerhólsskóla er komið á fullt á nýju ári. Leikskólanemendur mættu galvaskir í skólann á þriðjudaginn og grunnskólanemendur í dag. Á morgun er síðan þrettándinn og þá verða jólin kvödd. Á myndinni hér til hliðar má sjá nemendur í 1. – 4. bekk í útikennslu í stærðfræði þar sem snjór var mældur. Mæld var [...]

Lesa meira

Þrettándagleði á Sólheimum

Desember  2011 192

Á morgun 6. janúar verður þrettándagleði á Sólheimum. Gleðin hefst kl. 16:00 með íþróttaleikhúsi, síðan leiða álfakóngur og drottning göngu að  brennustæðinu þar sem ýmislegt verður brallað að ógleymdri flugeldasýningunni. Sjá nánar dagskrána í bréfi hér hægra megin undir; Bréf til forráðamanna.

Lesa meira

6. janúar 2012

Þrettándagleði leikskóladeildar Kerhólsskóla

Álfaprinsessa

Í dag kvöddu börnin í leikskólanum jólin. Bekkjarfulltrúar leikskóladeildar komu til okkar og bökuðu vöfflur og hituðu kakó sem við gæddum okkur á í kaffitímanum. Piparkökuhúsið var brotið og etið með góðri list! Foreldrum var boðið að koma og vera með okkur og nýttu sér það þó nokkrir. Meðferðis höfðu þær einnig fulla kassa af búningum [...]

Lesa meira

10. janúar 2012

Skóli byrjar seinna í dag í grunnskóladeildinni

Í dag þriðjudaginn, 10. janúar fara skólabílarnir 2 klst. seinna af stað en venjulega vegna ófærðar. Skóli byrjar því kl. 10:30. Skólinn er hins vegar opinn fyrir þau börn sem koma fyrr. Staðan verður  tekin um kl. 9:30 og þá ákveðið hvort fella þurfi alveg niður kennslu í grunnskóladeildinni í dag eða ekki. Leikskóladeildin verður opin fyrir [...]

Lesa meira

Kennsla fellur niður í grunnskóladeildinni í dag

Í dag, þriðjudaginn 10. janúar fellur kennsla niður í grunnskóladeild Kerhólsskóla og því enginn skólaakstur. Skólinn verður þó opinn fyrir þá nemendur og foreldra sem þurfa á því að halda. Leikskóladeildin verður opin fyrir þau börn sem koma í dag. Vakin er athygli á því að mikil ófærð er í sveitarfélaginu og veðurspáin er slæm fyrir daginn.  Það er [...]

Lesa meira

12. janúar 2012

Bókagjöf til skólans

Jóhanna gefur skólanum bækur

Í dag fimmtudaginn 12. janúar fékk skólinn höfðinglega bókagjöf frá  fjölskyldu í sveitarfélaginu. Það var hún Jóhanna Katrín  Bender á Borgarbrautinni sem kom færandi hendi með tvo fulla kassa af bókum. Helga Haraldsdóttir umsjónarmaður bókasafnsins tók á móti gjöfinni fyrir hönd skólans. Um er að ræða ýmsar barna- og unglingabækur eftir íslenska og erlenda höfunda. Má [...]

Lesa meira